Þá er bara komið að því.... fyrsta jólaglögg tjúttfélagsins - ég hlakka ekkert smá til.
Ég athugaði loksins með flugumferðastjóra salinn - ég veit að ég er algjör sauður en síðustu vikur eru búnar að fara 100% í íbúðarleit og það var heldur betur árangur því að ég er búin að kaupa íbúð!!! Alla vega þá þarf víst að panta salinn í gegnum einhvern flugumferðastjóra. Ég þekki engann flugumferðastjóra en hvað með ykkur? Annars er fullt af öðrum sölum til ef áhuginn er enn fyrir hendi að leigja sal á gamlárs. Er einhver annar búinn að athuga með sali (fyrir utan Biddý sem var búin að tékka á nokkrum)?